Sjúkratryggingar um niðurgreiðslur vegna POTS, eldislaxar í Haukadalsá úr Dýrafirði og borgarráð um öryggi á leikskólum
Sjúkratryggingar Íslands höfðu ekki upplýsingar um að sérfræðilæknar voru ekki alltaf viðstaddir viðtöl við sjúklinga með POTS-heilkenni sem fengu saltvatnsgjöf og niðurgreidda meðferð.
Þrír laxar af 11 sem veiddir voru í Haukadalsá og komu úr sjókvíaeldi - sennilega úr Dýrafirði, samkvæmt upprunagreiningu MAST.
Gögn sem lekið var frá ísraelska hernum sýna að mikill meirihluti þeirra sem herinn hefur drepið á Gaza síðustu misseri eru almennir borgarar, eða fimm á móti hverjum grunuðum vígamanni.
Borgarstjóri segir börn alltaf njóta vafans þegar grunur er um að velferð þeirra sé ógnað. Í skoðun sé hvers eðlis ársgömul ábending var um leikskólastarfsmann sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisbrot.
Næstum helmingi fleiri hafa hringt í hjálparsíma Rauða krossins í sumar vegna sjálfsvígshugsana en í fyrra og sjálfboðaliðar greina alvarlegri tón í samtölum sem berast.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps hafnaði í gær tillögu um stækkun hótels í Flatey á Breiðafirði. Minjastofnun sagði framkvæmdirnar geta haft neikvæð og óafturkræf áhrif.