Þrumuveður, lestarslys og grunur um kynferðisbrot í leikskóla
Hjólhýsi sprakk, kerra endaði utan vegar og ferðamenn á mótorhjólum og reiðhjóli þurftu aðstoð niður af Holtavörðuheiði í hávaðaroki. Rúmlega 400 eldingum laust niður í miklu þrumu- og eldingaveðri á suðvesturhorninu.
Einn er látinn og margir slasaðir eftir lestarslys á Suður-Jótlandi. Lest fór út af sporinu eftir að hún lenti á farartæki á brautarteinunum.
Foreldrar barna á Múlaborg í Reykjavík segjast hræddir og miður sín eftir að hafa heyrt af því að starfsmaður sé grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni í skólanum.
Forsetar Rússlands og Bandaríkjanna setjast brátt að fundarborði í Alaska til að ræða um stríðið í Úkraínu. Fulltrúar rússneska stjórnvalda segja að fundurinn gæti orðið margir klukkutímar.
Fulltrúar veiðifélaga útbúa viðbragðsáætlanir, skyldi eldislax finnast í fleiri laxveiðiám. Formaður Landssambands veiðifélaga telur að núverandi fyrirkomulag við sjókvíeldi útrými íslenska laxastofninum.
ASÍ hafnar alfarið ásökunum N1 og forstjóra þess um óvönduð vinnubrögð í umfjöllun Verðlagseftirlits ASÍ um innlend olíuverð. Forstjórar tveggja olíufélaga segja það algjöra fásinnu að þau samræmi verðlagningu sína. ASÍ kveðst hafa átt við þegjandi samhæfingu milli fyrirtækjanna.