Kiljan

Þáttur 11 af 24

Síðasta Kilja vertíðarinnar er á dagskrá RÚV á miðvikudagskvöld. Við fjöllum um tvær glænýjar og mjög athyglisverðar skáldsögur eftir höfunda sem eru senda frá sér sínar fyrstu bækur. Henrik Geir Garcia segir okkur frá bók sinni Læknir verður til. Henrik er sjálfur læknir og rekur í bókinni af mikilli hreinskilni ferilinn frá upphafi læknanáms og til starfa á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Bók Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur nefnist Sumarblóm og heimsins grjót. Þetta er örlaga- og ástarsaga sem gerist á fyrri hluta síðustu aldar. Við förum á Bókmenntahátíð og ræðum við höfundana Jenny Colgan, Dina Nayeri og Hannah Kent. Í dagskrárliðnum Bókum og stöðum förum við svo Görðum á Álftanesi en þar er finna margvíslegar sögur og fróðleik. Gagnýnendur þáttarins fjalla um Rimsírams eftir Guðmund Andra Thorsson, Mæður og syni eftir Theodor Kallifatides og ritgerðasafnið Skáldreka en það rita höfundar af erlendum uppruna sem búa á Íslandi. Semsé - mjög efnismikill lokaþáttur.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

26. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,