Kiljan

Þáttur 5 af 24

Í Kilju þessarar viku fjöllum við um merka bók, Jarðsetningu, eftir Önnu Maríu Bogadóttur arkitekt. Anna María fylgdist með niðurrifi Iðnaðarbankahússins í Lækjargötu sem eitt sinn var tákn framfara. En tími þess var stuttur, varla nema hálf öld, og verður Önnu Maríu tilefni til vangaveltna um borgarskipulag, framfaratrú, sóun og sitthvað fleira. Guðrún Brjánsdóttir ræðir við okkur um fyrstu skáldsögu sína, hún nefnist Óbragð og er gamansöm hrakfallasaga þar sem segir meðal annars frá kakóathöfnum. Árni Matthíasson fræðir okkur um þá frægu vísindaskáldsögu Dune eftir Frank Herbert en hún birtist loks í íslenskri þýðingu. Skáldið Sigurbjörg Þrastardóttir segir okkur frá nýjustu bók sinni sem nefnist Krossljóð og flytur kvæði úr henni. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Ljósagang eftir Dag Hjartarson, Veldi hinna illu eftir Anthony Burgess og Litháana við Laptehaf eftir Dalia Grinkeviciue.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

1. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,