Rokkland

Magnús Þór, JFDR, Selló Stína, Rebekka Blöndal

Í Rokklandi dagsins ætla ég koma við ansi víða og tónlistin sem við heyrum í dag er ansi fjölbreytt. 50?s bíópopp, rafdrifinn rímnakveðskapur, rokkkóramúsík, draumapopp á þjóðlagagrunni og allt mögulegt.

Kristín Lárusdóttir segir okkur frá nýju plötunni sinni sem heitir Kría. Þar er selló í aðalhlutverki en líka raf-græjur ýmiskonar og rímnakveðskapur um menn með sverð og morðingja. Rebekka Blöndal ætlar syngja lög sem Marilyn Monroe söng á sínum tíma á tónleikum á Múlanum í Björtu loftum í Hörpu miðvikudaginn 10. Maí. Við heyrum í Marilyn og Rebekka segir okkur frá. Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir eða JFDR var senda frá sér sína þriðju sólóplötu - gullfallega plötu sem heitir Museum. Hún er leggja upp í tónleikaferðalag um Evrópu og heldur svo útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík 8. Júní. Jófríður er gestur Rokklands í dag.

Og svo er það Magnús Þór Sigmundsson sem ég heimsótti í Hveragerði um daginn.

Frumflutt

7. maí 2023

Aðgengilegt til

8. maí 2024
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,