Rokkland

Svalir eins og á húsum...

Arnar og Helgi sem eru Úlfur Úlfur eru gestir Rokklands á sunnudaginn.

Þeir eru frá Sauðarkróki, voru saman í hljómsveitinni Bróðir Svartúlfs semsigraði í Músíktilraunum árið 2009. Bróðir Svartúlfs gaf út eina plötu en liðaðist síðan í sundur. Arnar og Helgi héldu áfram gera músík, eru í dag tveir eftir og önnur platan þeirra, Tvær plánetur hefur heldur betur slegið í gegn.

Þeir tala um æskuna á Sauðarkróki, um Músíkítilraunir, Tom Waits, Eminem, Ace of Base og þráhyggjuna.

það er hiti í rappsenunni í dag, líklega meiri en verið hefur í næstum 15 ár.

Úlfur Úlfur kemur fram á Airwaves og ég ætla líka kynna til sögunnar nokkur af erlendu nöfnunum sem koma fram á Airwaves í ár.

Þátturinn hefst svo á umfjöllun um hár-metal-plötunur.

Frumflutt

18. okt. 2015

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,