Rokkland

Bubbi og við

Bubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki segja margt sjálfur í dag.

Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba hann er búinn vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg hann er alltaf þarna- eins og Esjan.

Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum alveg eins og hann hefur skoðun á öllu.

Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær:

"Tónlistina þarf ekkert ræða. Hún er fyrir löngu handan þess vera góð eða slæm við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér".

Rokkland vikunnar er þannig samferðafólk Bubba gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba Bubbi og ég - Bubbi og við.

Birt

7. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,