Rokkland

Eyrarrokk 2025 - Oasis endurkoman – 100 club – Gegnum holt og hæðir

Í Rokklandi vikunnar heyrum við söguna á bakvið eitt af lögunum sem verða flutt á 30 ára afmæli Rokklands í Hofi á Akureyri 1. nóvember þar sem SinfoníaNord, Todmobile bandið og fjöldi frábærra söngvara flytja haug af frábærum lögum.

Við heyrum líka um endurkomu Oasis en Rokkland var á lokatónleikum Oasis í Bretlandi 28. september sl. á Wembley Stadium.

Rokkland kom líka við í einum sögufrægasta rokkklúbbi breta í Oasis ferðinni 100 Club þar sem Oasis spilaði einu sinni og Kinks og Who, Rolling Stones, Jimi Hendrix, Muse, Cure ofl. 320 manna staður við Oxford Street númer 100. Sama fjölskyldan hefir rekið staðinn í næstum 70 ár.

Eyrarrokk er rokkhátíð eins og nafnið gefur til kynna sem fór fram í fimmta sinn á Akyreyri á dögunum á Eyrinni. Rögnvaldur gáfaði er einn af skipuleggjendum og Rokkland heimsótti hann og Bigg Maus sem er einn af þeim sem spilaði á hátíðinni í ár.

Frumflutt

12. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,