Rokkland

Elín Hall á ESNS 26 - Sú Ellen og Ási í Paradís - Hellfoss 2026

Í seinni hluta Rokklands í dag kíkjum við í Sandgerði og heimsækjum feðgana Jóa og Ása Jóa í Messoforte og Ása tromara son hans sem reka í Sandgerði Stúdíói Paradís sem er byggt á landi sem afi Ása KK hljómsveitarstjórinn KK (Kristján Kristjánsson KK sextett) átti. Við heyrum spjall við Ása og strákana í hljómsveitinni Ellen frá Neskaupsstað sem er jafn gömul Rás 2 og er búin vera taka upp plötu í Paradís.

Þaðan leiðin á Selfoss á HELLFOSS nýja þungarokkshátíð sem 12 hljómsveitir spiluðu á um helgina á Sviðinu á Selfossi. Dr. Spock Une Misere Volcanova Slysh Auðn og fleiri. Rokkland spjallaði við Rúnar Hroða Geirmundsson stjórnanda Hellfoss , Sigga Pönk -Smára Tarf Finna á Prikinu og Óttar Proppé.

Svo setjum smá fókus á Minnieapolis ICE - Bruce Springsteen og Billy Bragg. En byrjum á Elínu Hall sem Rokkland spjallaði við á Eurosonic festival í háskólaborginni Groningen í Hollandi um miðjan janúar.

Birt

8. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,