Rokkland

TÞM - útrás Utangarðsmanna og Europe´s Biggest Gig

Í Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku.

Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.

Birt

8. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,