Rokkland

Er eitthvað að gerast í Sviss? og Trump og U2

Um síðustu helgi fór fram tónlistarhátið í Lausanne í Sviss sem heitir Label Suisse og Rokkland var á staðnum.

í seinni hluta þáttarins á eftir skreppum við til Sviss og heyrum soldið af nýrri poppmúsík frá Sviss sem hann velur ofan í okkur náungi sem heitir Francois Kuffer og tónlistarstjóri hjá "Rás 3 ? útvarpi unga fólksins hjá Frönskumælandi Sviss (RTS ? Radio and Telvision Suisse).

Label Suisse gengur út á kynna það nýjasta og besta í Sviss sem hefur eiginlega geyma fjórar þjóðir sem tala fjögur tungumál í einu litlu landi.

Bruce Spingsteen og U2 koma við sögu í þættinum en bæði U2 og Springsteen bauluðu á Donald Trump í vikunni sem leið með þeim hætti heimurinn tók etir því og sperrti eyrun, U2 gerði það á fyrstu tónleikum sínum á árinu, en þeir fóru fram í Las Vegas á föstudaginn.

Danska hljómsveitin Tremolo Beer Gut spilaði á KEX-hostel á fimmtudaginn og svo í Boston (USA) um helgina. Þessi skemmtilega gítar-sörf-sveit frá Kaupmannahöfn heimsótti stúdíó 12 á föstudaginn og við heyrum það í Rokklandi dagsins og svo samskonar upptökur frá BBC með Led Zeppelin sem voru koma út fyrir nokkrum dögum, upptökur sem voru gerðar á árunum 1969 ? 1971, en á þeim tíma kom Zeppelin 6 sinnum í upptöku hjá BBC fyrir hina ýmsu þætti, t.d. fyrir John Peel.

Svo er líka í þættinum boðið upp á nýja músík með Mugision, Leonard Cohen, The Weeknd og Daft Punk og Keane.

Hér er lagalisti þáttarins:

Mugison / I´m a wolf

Led Zeppelin / Something else (live á BBC)

Led Zeppelin / Communication Breakdown (live á BBC)

Led Zeppelin / What is and what should never be (live á BBC)

Tremolo Beer Gut / Caipirihna river cruise (Stúdíó 12)

Tremolo Beer Gut / Claytons Hotrod (Stúdíó 12)

Tremolo Beer Gut / n/a (Stúdíó 12)

Bruce Springsteen / Indipendance day

U2 / Desire

Patti Smith / Until the end of the world

Keane / tear up this town / Keane

The Weeknd feat. Daft Punk/ Starboy

Sophie Hunger / Supermoon (Sviss)

Paul Gamboni / Paul (Sviss)

Reykjavíkurdætur / Tista (Sviss)

OY/ Space Diaspora (Sviss)

The Rambling wheels / Stories upon your lips (Sviss)

Verena Von Horsten / The hymn (Sviss)

Kaedebostany / Frozen to death (Sviss)

Leonard Cohen / You want it darker

Frumflutt

25. sept. 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,