Rokkland

Hryllingur og drottningin af Færeyjum

Í Rokklandi vikunnar er Eivør Pálsdóttir í aðalhlutverki í bland við létta hryllingsmúsík á Hrekkjavöku og nýjustu fréttir af Phil Collins.

Eivør var senda frá sér 10undu plötuna sína. Hún heitir Slör og er öll sungin á færeysku. Slør er systurplata síðustu plötu, Bridges, sem kom út fyrr á árinu. meðan ég var skrifa lögin komu textarnir til mín bæði á ensku og færeysku - líkt og spegilmyndir. Flest lögin voru því skrifuð í pörum". segir Eivør. Slør og Bridges er því í senn ein heild og tvær mjög ólíkar plötur. Eivør segir betur frá þessu og ýmsu öðru í Rokklandi.

Halloween eða Hrekkjavaka er alltaf.31. október. Halloween kemur frá Keltum og á Halloween eru mörk heima hinna lifandi og hinna dauðu óljósari en aðra daga og þá fara draugar og óvættir á stjá. Í tilefni Hrekkjavöku verður boðið upp á örlítið af léttri og skemmtilegri hryllingsmúsík og textar skoðaðir sérstaklega. Kven-djöflar koma við sögu.

Og svo er eitt og annað frétta af Phil Collins. Við förum yfir það líka, en hann sagði skilið við tónlistarheiminn fyrir fjórum árum. Hvers vegna? Er hann með bakþanka? Það er það - hlustaðu bara á Rokkland á morgun kl. 16.05.

Frumflutt

1. nóv. 2015

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,