Rokkland

Hver er Bad Bunny og hver er Ívar Ben?

Í Rokklandi vikunnar kynnumst við Jarðfræðiprófessornum Ívari Ben sem var senda frá sér sína fyrstu plötu og á vinyl. Hann er búinn vera búa til lög árum saman en svo vatt þetta upp á sig og er komin út plata.

En í fyrri hluta þáttarins kynnumst við Bad Bunny sem vakti mikla athygli fyrir skemmtiprógrammið sem boðið var upp á í hálfleik á Superbowl í bandaríska fótboltanum síðasta sunnudag Ofurskálinni.

Þetta 13 mínútna skemmtiatriði Bad Bunny frá Puerto Rico hefur skipt fólki í fylkingar og einn af þeim sem er óánægður er foringinn í hvíta-húsinu í Bandaríkjunum sem sagði á samfélagsmiðlinum sínum þetta atriði hafi verið eitt það versta frá upphafi skemmtiatriða á Superbowl og móðgun við mikilleika Bandaríkjanna. Þá hafi dansatriðin verið ógeðsleg, sérstaklega fyrir börnin sem horfðu á. „það skilur enginn orð af því sem þessi gaur segir“ sagði hann líka en hann söng á spænsku sem er hans tungumál og móðurmál eins og c.a. 45 milljóna bandaríkjamanna c.a. 13% bandarísku þjóðarinnar.

Birt

15. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,