Rokkland

Víkingur Heiðar

Gestur Rokklands þessa vikuna er enginn annar en píanósnillingurinn OKKAR Víkingur Heiðar Ólafsson

En Víkingur Heiðar er með 2 og hálfa milljón hlustenda á mánuði á Spotify - hann ferðast um heiminn þveran og endilangan og spilar í glæsilegustu tónleikahúsum heims Carnegie Hall Royal Albert Hall- og svo framvegis.

Hann býr á Seltjarnarnesinu - spilar yfir 100 tónleika á ári í útlöndum - er dáður og virktur gefur út hjá elsta plötufyrirtæki heims hinu virta Deutche Grammophone.

Hann hefur komið fram hjá Jools Holland á BBC var í löngu viðtali hjá upptökustjóranum Rick Rubin fyrir skemmstu og þannig mætti lenggi halda áfram. Víkingur Heiðar er stórstjarna og ekki bara í útlöndum vegna þess við landar hans erum líka afskaplega hrifin af honum. Hann er spila í Eldborg í Hörpu í næstu viku þrisvar sinnum miðvikudag skírdag og laugardaginn fyrir páska.

Hann gaf sér tíma til koma í upptöku fyrir Rokkland í stúdíó 12 í stuttu stoppi hérna heima - hann stoppaði í tæpa tvo sólarhringa var koma frá París þar sem hann var spila og var á leiðinni til Bandaríkjanna til spila nokkra tónleika áður en hann kom svo aftur heim og hann var veikur.

Undir lok þáttarins förum við svo í Hljóðrita í Hafnarfiði og hlustum á Vintage Caravan ásamt Tómasi Jónssyni og Eyþóri Inga spila og syngja Deep Purple en þeir eru með tónleika í Eldborg og Hofi núna í apríl þar sem þeir ætla spila Deep Purple og ég get sagt ykkur það er ekki hægt gera það betur en þeir gera það. Frábærir!

Birt

29. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,