Rokkland

Hann dó eins og hann lifði...

....eins og listaverk í sjálfu sér. Við erum auðvitað tala um David Bowie sem lést tveimur dögum eftir varð 69 ára og sendi frá sér nýjustu plötuna sína - Black Star.

Tónlist hefur svo mikil áhrif á okkur á allan mögulegan hátt, og þó svo David Bowie hafi ekki þekkt mig og þig ? þá þekktum við hann. Hann söng okkur í svefn og í stuð. Við höfum dansað með honum ? við sáum hann í bíó, sáum hann í Skonrokki og á MTV, heyrðum í honum í útvarpinu, sáum hann á tónleikum. Við fylgdumst með hans sí-kviku hreyfingum og dáðumst honum í BRAVO og límdum myndir af honum upp á vegg á Akranesi, Akureyri og í Keflavík. Hann var vinur okkar....þó svo hann hafi ekki þekkt okkur...þannig.

Í þessum fyrri þætti af tveimur skauta ég yfir síðustu 10 árin í lífi Bowie og síðan fyrstu árin.

Bowie segir sjálfur frá einu og öðru, Tony Visconti upptökustjóri og vinur kemur við sögu, en hann er einn nánasti samstarfsmaður Bowie frá upphafi og allt til enda. Hann var með honum á "fyrstu" plötunni - Space Oddity 1969 og líka á Black Star.

Svana Gísladóttir sem býr í London og gerði myndböndin við lögin Black Star og Lazarus með Bowie stuttu áður en hann lést kemur líka við sögu, og eins Ragnheiður Hanson sem féll 13 ára gömul fyrir manninum og söngvaranum og stóð síðar hans einu heimsókn til Íslands - tónleikunum í Laugardalshöll 1996.

Og svo er það auðvitað tónlistin - maður lifandi!

Frumflutt

24. jan. 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,