Rokkland

Lengi lifir...

...í gömlum glæðum segir máltækið.

Hljómsveitin Quarashi kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf fyrir 20 árum síðan. Þetta er mikið notaður frasi og hann er sannur í þessu samhengi, ?Quarashi kom, og sigraði.

En Quarashi hætti síðan og til minningar um hljómsveitina og feril hennar kom út safnplata árið 2011 sem heitir Quarashi Anthology.

En þrátt fyrir Quarashi hafi þakkað fyrir sig og hvatt fyrir rúmum áratug hafa þessir gaurar sýnt það í verki lengi lifir í gömlum glæðum og það er oft erfitt slökkva alveg. Og á meðan það er glóð þarf ekki nema örlítinn andvara til hleypa upp neistaflugi þannig úr verður heilmikið bál.

Og Quarashi logaði glatt á Þjóðhátíð í Eyjum um síðustu helgi, sveitin spilaði á laugardagskvöldinu fyrir fullum dal af fólki, það eru tónleikar á NASA næsta föstudagskvöld, fyrr í sumar sendi Quarashi frá sér nýtt lag og myndband og það er hugsanlega plata á leiðinni.

Þeir eru gestir mínir í Rokklandi í dag þeir Sölvi og Steini úr Quarashi.

Frumflutt

7. ágúst 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,