Rokkland

Keith Richards og sveim frá Tálknafirði

Jón Ólafsson og Futuregrapher og Keith Richards eru í aðalhlutverki í Rokklandi dagsins.

Platan EITT með þeim Jóni Ólafssyni úr Dönsk og raftónlistarmanninum Futuregrapher sem kom út núna á dögunum hfur vakið mikla athygli. Hún vakti líka athygli mína og þess vegna hlustaði ég á plötuna og bað þá Jón og Tálknfirðinginn Árna Grétar sem er nafn Futuregrapher, í kjölfarið um heimsækja Rokkland. Við heyrum í þeim og lög af plötunni í þætti dagsins.

Keith Richards verður 72 ára í desember. Ég held það útbreidd og almenn skoðun það mjög skrýtið maðurinn skuli vera á lífi, hann ekki löngu dauður eftir allan ólifnaðinn, brennivínið, dópið, grasið og sígaretturnar. En áfram skröltir hann þó og núna í september var þriðja sólóplatan hans koma út. Hún heitir Crosseyed Heart og um hana hefur veruð talsvert fjallað í músíkpressunni um allan heim. Hún hefur líka náð hærra á vinsældalistum en hinar plöturnar hans tvær (Talk is cheap 1988 og Main Offender 1992). Hún náði t.d. alla leið í fyrsta sæti í Austurríki og í Argentínu. Ég ætla spila lög af öllum sólóplötunum hans hérna á eftir og svo heyrist aðeins í honum sjálfum, og Rolling Stones líka.

Biggi Hilmars og Lennon, og Morrissey koma líka við sögu.

Frumflutt

11. okt. 2015

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,