Rokkland

Maus í 30 ár

Fimmtudaginn 19. október fagnar hljómsveitin Maus 30 ára afmæli sínu með tónleikum í Gamla bíó. Hljómsveitin var stofnuð í Árbænum í apríl árið 1993 og spilaði sína fyrstu tónleika þá um sumarið. Árið eftir sigraði Maus í Músíktilraunum og gaf út sína fyrstu plötu þann vetur.

Á næstu 12 árum kom fjórar aðrar plötur sem hafa geyma mörg lög sem síðan hafa verið spiluð reglulega á sumum útvarpsstöðvum landsins.

2004 lagðist hljómsveitin í dvala og síðasta áratuginn hefur Maus komið einstaka sinum saman til spila, fagna vinskap og höfundarverki hópsins, helst í kringum endurútgáfur platna þeirra á vínyl.

Birgir Örn Steinarsson söngvari, gítarleikari og textahöfundur Maus er gestur Rokklands þessu sinni.

Við heyrum líka í nokkrum þeirra sem spila á Iceland Airwaves í byrjun nóvember.

Frumflutt

15. okt. 2023

Aðgengilegt til

16. okt. 2024
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,