Rokkland

Purrkur Pillnikk - Orð fyrir dauða og jól

Senn líður jólum og í dag er síðasta Rokkland fyrir jól. Það verður smá jólastemning í seinni hlutanum, en í fyrri hlutanum er það Purrkur Pillnikk í tilefni af því það var koma út RISA-vinyl-plötukassi/pakki með Purrki Pillnikk. Pakkinn ber heitið Orð fyrir dauða og hefur geyma alla músík sem hljómsveitin gaf út á þeim 18 mánuðum sem hún starfaði, 1981 til 1982, og áður óútgefnar tónleikaupptökur OG nýjar upptökur sem voru í Sundlauginni í Mosó fyrr á árinu.

Pakkinn inniheldur líka stóran og mikinn bókling með myndum, lista yfir alla tónleika hljómsveitarinnar á sínum tíma og frásagnir ýmissa af Purrki Pillnikk - Purrkurinn og ÉG.

Purrkur Pillnikk var eitt aðal bandið í Rokki í Reykjavík á sínum tíma og frá þessum ungu mönnum kom eiginlega stefnuyfirlýsing pönkkynslóðarinnar á Íslandi: Það skiptir ekki máli hvað maður getur - heldur hvað maður gerir. Þessir strákar úr Reykjavík sögðu okkur krökkunum á þessum tíma maður þyrfti ekkert kunna spila gítarsóló til vera í hljómsveit - þeir sjálfir kynnu sama og ekkert en samt væru þeir í hljómsveit. Þetta varð til þess upp spruttu hljómsveitir um allt land, Músíktilraunir fæddust svo 1982 og svo framvegis.

3 af liðsmönnum Purrksins voru með í Kuklinu og svo í framhaldinu Sykurmolunum sem nokkrum árum síðar prýddi svo forsíðu stóru bresku músíkblaðanna NME og Melody Maker.

Purrk Pillnikk skipuðu Einar Örn - rödd, @Bragi Ólafsson á bassa, Friðrik Erlingsson á gítar og Ásgeir Bragason á trommur. Ásgeir er látinn en hinir þrír ásamt Sigtryggi Baldurssyni sem var trommari Sykurmolanna- og í hljómsveitinni ÞEYR í Rokki í Reykjavík, komu saman og spiluðu í Smekkleysubúðinni við Hverfisgötu fyrir hálfum mánuði. Ég náði plata í Rokkland þá Friðrik og Einar Örn til spjalla um Purrk Pillnikk - Íslandi árið 1981 - síðpönk - The Fall - afturgöngur - skólahljómsveitir - Gramm - sköpun - leiðindi - Utangarðsmenn - íslensku, og meira segja jólalög.

Frumflutt

17. des. 2023

Aðgengilegt til

18. des. 2024
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,