Rokkland

Uppáhalds lög hlustenda Rásar 2 í 40 ár og Kiss

Rás 2 varð 40 ára 1. desember 2023.

Eitt af því sem Rás 2 gerði í tilefni af afmælinu var hlustendur til velja uppáhalds lögin sín frá þessum 40 árum. Það voru gerðar nýjar útgáfur af þessum fjórum lögum í RÚV og þær frumfluttar í Popplandi á afmælisdaginn. Við heyrum þær aftur, viðtöl við höfundana og einnig hvað fólkið á götunni hefur segja um þessi lög sem eru: Fjöllin hafa vakað (EGO), Vegbúi (KK), Murr Murr (Mugison) og París norðursins (Prins Póló).

Hulda Geirsdóttir fór með hljóðnema á samkomu þar sem hópur af aðdáendum hljómveitarinnar Kiss fylgdist með í streymi frá lokatónleikum hljómsveitarinnar frá Madison square Garden í New York. Við kveðjum Kiss í Rokklandi.

Frumflutt

3. des. 2023

Aðgengilegt til

4. des. 2024
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Þættir

,