Kvöldfréttir útvarps

Umferðartafir, Hormússund, tilkynningar til barnaverndar og metaregn á Landsmóti hestamanna.

Miklar tafir voru á umferð um Holtavörðuheiði og Hellisheiði síðdegis þar sem hjólhýsi fuku á hliðina og þveruðu vegi. Gular viðvaranir eru í gildi fram yfir miðnætti vegna hvassviðris um landið vestanvert.

Bandaríkjaforseta og Írönum ber ekki saman um hvort Hormússund opið eða lokað. Bandaríkjaher hóf árásir á Íran á í gær. Íranar hafa gert árásir á nágrannalönd sín við Persaflóa í dag í hefndarskyni.

Heildartilkynningum til barnaverndar, fyrstu þrjá mánuði ársins, fækkaði á milli ára en tilkynningum um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi fer fjölgandi.

Landsmóti hestamanna lauk í gærkvöldi á Hólum í Hjaltadal eftir vikuúthald. Fjölmörg met féllu, bæði hjá kynbótahrossum og keppnishrossum.

Birt

12. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,