NATO-fundur, dómsmál, raforkuskortur, raforkukostnaður og skemmdarverk
Bandaríkjaforseti hótar hörðum árásum á Íran í kvöld og segir úti um samkomulag um vopnahlé.
Forsætisráðherra segir að andinn á leiðtogafundi NATO í Ankara hafi verið góður þrátt fyrir hörð orð í aðdraganda hans. Handaband hennar og Bandaríkjaforseta hefur vakið athygli.
Innheimtustofnun sveitarfélaganna var heimilt að segja upp forstjóra sem er grunaður um stórfelld brot í starfi. Hann krafðist níutíu milljóna bóta.
Fyrirtæki víða um land hafa þurft að stöðva framleiðslu vegna orkuskerðingar. Forstjóri eins þeirra segir stöðuna grafalvarlega. Orkuskortur sé í landinu.