Bakkakot, Landspítalinn, norðurslóðir og leikskólamál
Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu segist ekki hafa vitað um tilvist Bakkakots fyrr en fjallað var um bæinn í fréttaskýringarþættinum Kveik fyrir tveimur vikum. Hann harmar atburðina og segir brýnt að meira fjármagn verði sett í málaflokkinn.
Semja á við Klíníkina og flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis til að leysa vanda bráðamóttöku. Heilbrigðisráðherra segir tugi nýrra rýma til skoðunar til að létta undir með Landspítalanum.
Norðmenn vilja vita hvort Íslendingar séu á hraðferð inn í Evrópusambandið. Spurningin um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu kom ítrekað upp þegar forsætisráðherrar Íslands og Noregs hittust í Ósló í dag.
Félag leikskólakennara gefur lítið fyrir gagnrýni VR og BSRB á nýsamþykkta Reykjavíkurleið í leikskólamálum, þótt hún leysi vissulega ekki allan vanda.
Danakonungur segir mjög ánægjulegt að vera kominn aftur til Grænlands, velferð Grænlendinga sé honum afar mikilvæg. Hann er í þriggja daga opinberri heimsókn á Grænlandi.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson og Ásta Hlín Magnúsdóttir