Kvöldfréttir útvarps

Eftirlitslaus hagsmunasamtök, falskt öryggi í 112, staða áhafnar Bandero og deilurnar í FIFA

Ríkisendurskoðandi segir gloppur í lagaumhverfi þýða ekkert eftirlit með fjármögnun frjálsra félagasamtaka. Bæta þurfi úr þessu.

Maður sem lenti í alvarlegu slysi í Fljótsdal í vikunni segir það falskt öryggi hafa neyðarnúmer sem ekki náist í þegar á reynir. Það tók aðstandendur hans nokkrar atlögur og tvo síma til sambandi.

Allt tiltækt slökkvilið var kallað í Asparfell í Reykjavík skömmu fyrir klukkan fimm vegna reyks í stigagangi en enginn eldur fannst.

Líklega fara fyrstu skipverjarnir af Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, til síns heima í vikunni, en þeim var öllum vísað úr landi. Allir hafa þeir áfrýjað endurkomubanni Útlendingastofnunar og flestir halda til á skipinu.

Staða forseta FIFA heldur áfram veikjast. UEFA segist standa við hótun sína sniðganga mót á vegum FIFA þar til ákveðin skilyrði hafa verið uppfyllt.

Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Birt

6. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,