
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Karlmaður sem var handtekinn í síðustu viku vegna andláts manns um sjötugt tengist honum fjölskylduböndum. Þeir eru báðir íslenskir.
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu vill senda sérfræðingateymi til landsins til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Meðal þess sem hún bendir á eru glufur í löggjöf um fjármögnun kosningabaráttu.
Atvinnuvegaráðherra segir hvalveiðar of fyrirferðarmiklar miðað við hversu lítil atvinnugreinin sé. Brottvísun skipverja af Bandero gæti tekið nokkrar vikur.
Kona sem var handtekin vegna gruns um að hafa stungið fjóra menn í miðborg London í dag er talin glíma við andleg veikindi.
Mörg hundruð fjölskyldum með börn hefur verið skipað að yfirgefa borgina Kramatorsk í austurhluta Úkraínu. Rússneskar hersveitir sækja fram 20 kílómetrum frá jaðri borgarinnar.
Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir