Kvöldfréttir útvarps

Hitabylgja í Evrópu, sprengjuhótun til Hvals hf., Ísraelar drepa palestínsk börn vísvitandi í árásum

Hitamet féllu víða um Evrópu í dag. Rauði krossinn varar fólk við og segir hitann stofna mannslífum í hættu.

Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst hótun í gegnum Neyðarlínuna í nótt um sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipa Hvals hf. og hann yrði virkjaður ef skipin héldu aftur til veiða, lögregla rannsakar málið en telur hótunina ekki trúverðuga.

Brýn samgönguverkefni á Austurlandi sem vilyrði var fyrir hafa verið slegin af eða færð aftar í samgönguáætlun - Austurlandi er skákað áratug aftur í tímann, segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Samhjálp fær ekki opna kaffistofu við Grensásveg 46.

Opnun sendiráðs á Íslandi er í forgangi hjá spænskum stjórnvöldum, segir utanríkisráðherra Spánar. Íslensk stjórnvöld opnuðu sendiráð í Madríd í fyrra.

Portúgalinn Cristiano Ronaldo varð í dag fyrsti leikmaðurinn til skora mark í sex lokamótum HM í fótbolta.

Birt

23. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,