Fjármálaráðherra um niðurstöður gjaldmiðlaskýrslu, fasteignalán og sigur landsliðsins í fótbolta á Úkraínu
Fjármálaráðherra segir gagnrýni á framsetningu fjármálaráðuneytisins á niðurstöður gjaldmiðlaskýrslu hvorki sanngjarna né réttmæta.
Bankar og lífeyrissjóðir hafa ekki nýtt aukið svigrúm vegna fasteignalána. Seðlabanki tvöfaldaði undanþáguheimild lánastofnana umfram hámarksgreiðslubyrði í fyrra.
Um fimmtíu manns fórust úr þorsta í Sahara-eyðimörkinni á dögunum. Bíll þeirra hafði bilað og vatnið klárast.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann Úkraínu í leik í undankeppnu HM 2027 og tryggði sér þannig betri stöðu fyrir umspil um sæti á mótinu.