Verðbólguviðmið í kjarasamningum, Seðlabankastjóri um upptöku Evru og stríðið í Úkraínu
Töluverðar líkur eru á því að verðbólguviðmið sem sett voru í kjarasamningana fyrir tveimur árum haldi ekki, að mati ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Þó er alls óvíst að samningum verði sagt upp.
Stjórnvöld þurfa að fara að leikreglum hvort sem Ísland notar krónu eða evru, segir seðlabankastjóri. Hann segir að upptaka evru krefjist aukins samstarfs bankans og stjórnvalda.
Rússnesk stjórnvöld eru uggandi vegna árása Úkraínu á skotmörk langt innan landamæra Rússlands. Drónarárásir gegn úkraínskum borgurum séu eina svarið sem Rússar sjái.