Fjölmenni á fundi um samgöngur í Vestmannaeyjum, gjaldmiðlaskýrsla og flug vestur
Niðurstöður úttektar á stöðu Landeyjahafnar lofa góðu, segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar en áfram verði að vinna að málinu og tryggja á meðan að það séu nægir fjármunir til að dýpka höfnina.
Seðlabankastjóri segir að evran leysi Íslendinga ekki undan ábyrgð á hagkerfinu. Ýmsir kostir fylgi upptökunni, en raunlaun væru vís til að lækka við upptöku evru.
Umhverfis- og samgöngunefnd vill láta skoða staðsetningu fyrir flugvöll á norðanverðum Vestfjörðum. Bæjarstjóri fagnar tillögunni, sveitarstjórnarmenn hafi lengi talað fyrir því að tryggja flugið til lengri tíma.
Nýr borgarstjóri, segir 100 daga aðgerðaráætlun nýs meirihluta í borginni vera raunhæfa. Meðal annars á að endurskoða bílastæðastefnu borgarinnar.