Þjóðaratkvæðagreiðsla samþykkt, verðbólga, iðjulausir Bretar, ullarvinnsla í vanda
Alþingi samþykkti skömmu fyrir fréttir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður 29. ágúst.
Formaður VR kallar eftir aukinni þátttöku fyrirtækja og sveitarfélaga í aðgerðum til að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Haustið geti orðið þungt að öllu óbreyttu.
Ungu fólki í Bretlandi sem er hvorki með atvinnu né í námi hefur fjölgað verulega á síðustu árum. Yfir milljón Bretar á aldrinum 16–24 ára eru nú í þeirri stöðu.
Bændum býðst nú að fá ullarteppi, -sængur eða hlutabréf frá Ístex í skiptum fyrir ull sem þeir höfðu ekki fengið greitt fyrir. Framkvæmdastjórinn segir það ekki gott að geta ekki borgað, en með þessu vilji þeir reyna að koma til móts við bændur