Unnið er af fullum þunga að því að létta á yfirfullum fangelsum, segir dómsmálaráðherra. Ekki sé hægt að leysa vandann samstundis.
Bandaríkjaforseti heitir því að öllum kjarnorkuverum Írana verði eytt samþykki þeir ekki samningstillögu hans. Íranar segja langt í land í friðarviðræðum.
Félag íslenskra barnalækna vill að heilbrigðisráðherra endurskoði reglugerð um viðurkenningu á sérnámi lækna. Það fáist í mörgum tilfellum ekki viðurkennt hér á landi.
Íslenski geitastofninn er enn í útrýmingarhættu þrátt fyrir fjölgun. Skortur á stuðningi við bændur er sagður fráhrindandi fyrir þá sem vilja rækta geitur.