Vægur dómur barnaníðings, páfinn gagnrýnir vopnaskak, menntamálaráðherra um einkunnagjöf
Foreldrar drengs sem var kynferðislega áreittur á heimili sínu í Hafnarfirði segja vægan dóm yfir brotamanninum áfall. Barninu sé ekki trúað og þeim líði eins og föngum á eigin heimili eftir að manninum var sleppt úr haldi í gær.
Menntamálaráðherra segir rangt að breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum hafi komið kennurum í opna skjöldu. Þeir lýsa alvarlegum áhyggjum af framgöngu ráðherrans.
Leo páfi telur heiminn í heljargreipum nokkurra kúgara. Hann hefur gagnrýnt aukinn hernað í heiminum að undanförnu, við litla hrifningu Bandaríkjaforseta.
Forstjóri Kviku segir að ekki hafi verið mögulegt að halda samrunaviðræðum áfram við Arion banka þar sem Samkeppniseftirlitið hafi álitið Kviku of samkeppnislega mikilvægt fyrirtæki.