Óveður, ófærð og skólastarf, kynferðisbrot í leikskólum, ESB-umræður og Moldóva
Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun og stórhríð suðvestantil. Mikil röskun verður á samgöngum. Flugferðum hefur þegar verið aflýst og verið tilkynnt um lokun vega í nótt.
Friðrik tíundi Danakonungur hefur falið Mette Frederiksen, forsætisráðherra og formanni Jafnaðarmanna, umboð til stjórnarmyndunar eftir þingkosningar þar í landi í gær.
Ráðgjafi, sem hefur aðstoðað leikskóla þar sem upp hefur komið grunur um kynferðisbrot, segir sveitarfélögin vera að bregðast við núna. Hún segir slík mál áfall fyrir allt samfélagið.
Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir Ísland hafa sérstöðu sem mögulegt aðildarríki að sambandinu.
Stjórnvöld í Moldóvu lýstu yfir neyðarástandi í orkumálum í gær. Samband við mikilvæga rafmagnslínu rofnaði eftir árásir Rússa í Úkraínu.