Kvöldfréttir útvarps

Óveður, ófærð og skólastarf, kynferðisbrot í leikskólum, ESB-umræður og Moldóva

Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun og stórhríð suðvestantil. Mikil röskun verður á samgöngum. Flugferðum hefur þegar verið aflýst og verið tilkynnt um lokun vega í nótt.

Friðrik tíundi Danakonungur hefur falið Mette Frederiksen, forsætisráðherra og formanni Jafnaðarmanna, umboð til stjórnarmyndunar eftir þingkosningar þar í landi í gær.

Ráðgjafi, sem hefur aðstoðað leikskóla þar sem upp hefur komið grunur um kynferðisbrot, segir sveitarfélögin vera bregðast við núna. Hún segir slík mál áfall fyrir allt samfélagið.

Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir Ísland hafa sérstöðu sem mögulegt aðildarríki sambandinu.

Stjórnvöld í Moldóvu lýstu yfir neyðarástandi í orkumálum í gær. Samband við mikilvæga rafmagnslínu rofnaði eftir árásir Rússa í Úkraínu.

Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt

25. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,