Stjórnarandstæðingar saka ráðherra um brot á þingskaparlögum, áfram barist í Mið-Austurlöndum
Alþingismenn tókust fram eftir degi á um fundarstjórn forseta og komið var á sjötta tímann þegar utanríkisráðherra byrjaði að mæla fyrir tillögu sinn um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Stjórnarandstaðan sakar utanríkisráðherra um brot á þingskaparlögum.
Loftvarnakerfi Tyrklands, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmana stöðvuðu öll eldflaugar frá Íran dag. Tyrklandsforseti varaði klerkastjórnina viið afleiðingum þess að skaða vinskap við Tyrkland.
Olíumarkaðurinn er í uppnámi vegna lokunar Hormúzsunds og verði það lokað lengi má búast við að olíuverð hækki enn mikið.
Vasaþjófar eru aftur byrjaðir að herja á fólk í miðborg Reykjavíkur og tilfellum hefur farið fjölgandi á síðustu dögum. Til skoðunar er að setja á ný upp varðturna með öryggismyndavélum til að bregðast við þessari þróun.
og lóan er komin að kveða burt snjóinn. Farfuglar eru fyrr á ferðinni í hlýnandi loftslagi en áður.