Raforkulög, Íran, björgunarflug, ESB, Reynisfjara, ferðaþjónusta og frjósamar kindur
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðar breytingar á raforkulögum og segir að þær verði hvort tveggja óþægilegar og umdeildar. Það sé bæði óviðunandi og óþolandi að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um mörg ár vegna ágreinings við landeigendur.
Deildarstjóri borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir unnið að því að hjálpa fólki að komast frá átakasvæðum í Mið-Austurlöndum og að sérstakt björgunarflug sé til skoðunar .
Þingsályktunartillaga um áframhald viðræðna um ESB-aðild verður að líkindum kynnt á morgun
Sandur hefur safnast í Reynisfjöru á ný. Enn er þó ógreiðfært í Hálsanefshelli sem hefur verið vinsæll hjá ferðamönnum.
Verið er að koma upp nýjum búnaði til að telja ferðafólk við um það bil 40 vinsæla áfangastaði hér á landi. Hálf önnur milljón ferðafólks heimsótti vinsælustu staðina í fyrra, Gullfoss og Geysi.
Kindur á Klausturseli í Jökuldal eru óvenju frjósamar í ár - fjórar virðast ætla að verða fimmlembdar, 34 fjórlembdar og 155 þrílembdar.