Netið veiðilendur fyrir vafasamt fólk og forsætisráðherra á Grænlandi
Netið er veiðilendur fyrir fólk með vafasamar fyrirætlanir og bráðin er viðkvæm börn. Þetta segir deildarstjóri á BUGL. Það er ekki nýtt að börn séu tæld til að fremja ofbeldisverk.
Flýta á undirbúningsvinnu fyrir gerð viðskiptasamnings milli Grænlands og Íslands. Þetta kom fram á fundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands, í Nuuk í dag.
Friðarferlið á Gaza gengur vonum framar að mati varaforseta Bandaríkjanna sem er staddur í Ísrael í tveggja daga heimsókn.
Matvælastofnun hvetur almenning til að vera vakandi fyrir veikum eða dauðum fuglum og spendýrum og tilkynna slíkt umsvifalaust. Þrír refir hafa greinst með skæða fuglaflensu.
Samninganefndir Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins funda enn í húsakynnum ríkissáttasemjara. Flugumferðarstjórar aflýstu fyrirhugaðri verkfallsotu í gærkvöldi.