Áhrifin af falli Play - fleiri en 400 missa vinnuna
Yfir fimmtíu hefur verið sagt upp hjá Airport Associates á Keflavíkurflugvelli. Atvinnuleysi gæti aukist um allt að hálft prósentustig eftir fall flugfélagsins Play í gær.
Hagfræðingur býst ekki við þungu höggi á efnahagslífið þó að áhrifin verði einhver á verðbólgu.
Óvinveittum ríkjum eins og Rússlandi hefur með fjölþáttahernaði tekist að gera allar bilanir tortryggilegar, að mati aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur alla sem hlut eiga að máli að samþykkja friðaráætlun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Gaza.
Nýtt hjúkrunarheimili sem er í smíðum á Hornafirði var ekki brunatryggt þegar eldur kviknaði þar í sumar. Forstjóri Framkvæmdasýslunnar segir að ríkisbyggingar séu almennt ekki tryggðar fyrr en þær eru tilbúnar en verktakinn segir það rangt.