Stefnt að aðgerðum til að þrýsta á Ísrael, fjárlagafrumvarp og franska stjórnin fallin
Fríverslunarsamningur við Ísrael verður ekki uppfærður, vörur frá hernumdum svæðum Ísraela verða merktar sérstaklega og farið verður fram á farbann yfir tveimur ísraelskum ráðherrum segir utanríkisráðherra sem kynnti utanríkismálanefnd síðdegis aðgerðir til að auka þrýsting á Ísrael vegna ástandsins á Gaza.
Ríkisstjórnin stefnir á að skila hallalausum rekstri fyrir árið 2027 samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Stjórnarandstæðingar segja þörf á meira aðhaldi í ríkisrekstri.
Kjörstöðum verður lokað í Noregi eftir stutta stund og á miðnætti gæti orðið ljóst hver verður næsti forsætisráðherra. Nærri helmingur norskra kjósenda kaus utan kjörfundar.
Frönsk stjórnmál eru í uppnámi eftir að þingið samþykkti ekki yfirlýsingu um traust á ríkisstjórninni. Forsætisráðherrrann er talinn munu segja af sér á morgun.
Sífellt fleiri frá löndum utan EES sækja um skólavist við Háskóla Íslands, Útlendingastofnun tókst ekki að afgreiða allar umsóknir um landvistarleyfi frá þessum hópi áður en námsárið hófst.