
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn tapar mestu fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups, þeim fyrsta sem gerður er eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir mánuði. Samfylkingin bætir mestu við sig.
Fyrsta degi aðalmeðferðar í manndrápsmáli í Kársnesi lauk á fimmta tímanum í dag. Sakborningurinn neitar sök.
Forseti ASÍ segir nýja verðbólgumælingu ekki skemma fyrir kjaraviðræðum. Von sé á þríhliða yfirlýsingu ASÍ, stjórnvalda og Samtaka atvinnulífsins, sem lækki verðbólgu.
Illa gengur að fá rökstuðning frá skrifstofu borgarstjóra vegna fjölda uppsagna sem ráðist var í í sumar. Hluta þeirra sem var sagt upp störfum hefur verið boðnar tímabundnar stöður.
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu staðfesti í dag að félagið Manchester City hefði verið sakfellt fyrir alvarleg brot á fjármálareglum deildarinnar.

Fréttir