
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Rannsókn lögreglu á eldsvoða á Stuðlum, þar sem 17 ára piltur lést, er komin til héraðssaksóknara. 12 eru með réttarstöðu sakbornings, grunuð um manndráp af gáleysi.
Lögregla hefur hætt rannsókn á E. coli-smiti á leikskólanum Mánagarði í hitteðfyrra. 2024 – þar sem hátt í fimmtíu börn veiktust, þar af nokkur lífshættulega.
Vinnuslys varð við tengivirki í Borgarfirði í dag og maður var fluttur með þyrlu á Landspítalann. Rafmagnslaust var í Borgarfirði og á Mýrum um tíma.
Starfsgreinasambandið gagnrýnir fyrirhugaðar hækkanir á álögum ríkisstjórnarinnar harðlega og segir stjórnvöld þurfa að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni.
Viðræður Bandaríkjanna og Írans í gegnum millilið héldu áfram í dag og bandarískur embættismaður lýsir þeim sem uppbyggilegum.
Yngsti stórmeistari kvenna á Ólympíumótinu í skák er ellefu ára bresk stúlka – sem byrjaði að tefla heima hjá sér í heimsfaraldrinum.

Fréttir