
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Þingmenn kröfðust svara frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, við upphaf þingfundar í dag. Tilefnið var samskipti Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, við aðstoðarmann sinn í aðdraganda afsagnar hans úr embætti.
Forsætisráðherra hafnar því að hafa þrýst á Guðmund Inga að segja af sér. Stjórnmálafræðingur telur að Flokkur fólksins hafi sýnt sitt rétta eðli í atburðarás síðustu daga.
Umhverfis- orku og loftslagsmálaráðherra efast um að lögbundið markmið um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040 sé raunhæft. Hann segir heldur ekki búið að skilgreina hvað felist í hugtakinu kolefnishlutleysi.
Bandaríkjaforseti lofaði mikla vináttu sína við forseta Kína þegar hann tók á móti honum í Hvíta húsinu í dag. Forseti Kína lagði áherslu á að gervigreind yrði ávallt að vera undir stjórn manna.
Árnar í Borgarfirði eru ofarlega á lista Landssambands veiðifélaga yfir fjölda veiddra laxa í sumar. Veiðin á landsvísu var mun betri í ár en í fyrra.
Umsjón: Erla María Markúsdóttir
Tæknimaður: Ævar Örn Jósepsson
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Fréttir