Verkfall flugvirkja hjá Icelandair, ólögleg bílastæðagjöld í Noregi
Allt stefnir í harða kjaradeilu Icelandair og flugvirkja. Flugvirkjar hafa boðað verkfall en Samtök atvinnulífsins segja félagið ekki geta mætt kröfum þeirra.
Aukagjöld við innheimtu bílastæðagjalda voru dæmd ólögmæt í Noregi á dögunum. Neytendasamtökin telja að hægt sé að heimfæra dóminn upp á Ísland.
Ráðgjafar- og greiningarstöð er komin í tímabundið húsnæði eftir að mygla greindist - það er viðunandi lausn í bili segir staðgengill forstjóra.
Breskur maður hefur játað að hafa byrlað eiginkonu sinni ólyfjan og nauðgað henni margoft á tuttugu ára tímabili. 12 aðrir eru ákærðir fyrir að hafa brotið á konunni.