
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Aldrei kom til greina að takmarka frjálsa för milli Íslands og Spánar eftir komu tugþúsunda flóttafólks til spænsku hólmlendunnar Ceuta, segir dómsmálaráðherra. Fulltrúar Evrópuríkja ræddu viðbrögð og aðgerðir í dag.
Allir skipverjar á Bandero verða frjálsir ferða sinna í dag. Lögreglan ætlar að áfrýja ógildingu héraðsdóms á ákvörðun lögreglu um að skipverji skyldi halda sig um borð.
Samfylkingin eykur forskot sitt á Sjálfstæðisflokkinn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi beggja flokka eykst frá síðustu könnun en litlar breytingar eru á fylgi annarra.
Matvælastofnun hótaði að stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta fyrr á árinu þegar stjórnendur hennar gerðu lítið með fjölda alvarlegra athugasemda við bága hestaheilsu þar á bæ.
Fækkun minni skemmtiferðaskipa við Íslandsstrendur má rekja til nýrra gjalda og skatta hér á landi, segir svæðisstjóri hjá alþjóðasamtökum skemmtiferðaskipa.
Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Fréttir