Kvöldfréttir útvarps

Venesúela, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og brottvísun fanga

Staðfest er 188 hið minnsta hafi farist og yfir fimmtán hundruð slasast í tveimur öflugum jarðskjálftum í Venesúela í gær. Hjálparsamtök telja lífskjör milljóna Venesúela versna eftir skjálftana.

Borgarstjóri segir mannréttindi verði áfram í heiðri höfð í Reykjavík þótt mannréttindaskrifstofa og -ráð verði lögð niður. Oddviti Samfylkingar segir ákvörðunina skera, þegar mannréttindi eiga undir högg sækja í heiminum.

Á næstu vikum verður níu erlendum föngum vísað úr landi með beitingu nýrrar, tímabundinnar, heimildar í lögum. Forstjóri Fangelsismálastofnunar segir áform uppi um fleiri brottvísanir.

Upplesnar kveðjur við jarðarfarir eru barn síns tíma mati presta á Akureyri, sem líkja þeim við tilkynningu á þjónustuborði í Hagkaup inn í fallega athöfn.

Umsjón: Þorgils Jónsson og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Birt

25. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,