Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Þingmenn í sumarfrí, forsætisráðherra Ítalíu orðlaus yfir ummælum Trumps og undirbúningur fyrir stórtónleika Kaleo í fullum gangi

Alþingi hefur lokið störfum þennan þingvetur og er farið í sumarfrí. 105 frumvörp urðu að lögum.

Forsætisráðherra Ítalíu segist orðlaus eftir ummæli Bandaríkjaforseta í ítölskum fjölmiðlum. Hún sakar hann um að hafa búið til sögu um samskipti þeirra á milli. Utanríkisráðherra landsins frestaði fyrirhugaðri ferð til Bandaríkjanna vegna málsins.

Lögreglunni á Austurlandi tókst að koma upp um þjófnað á yfir hundrað eggjum villtra íslenskra fugla í síðustu viku.

Undirbúningur fyrir stórtónleika Kaleo á morgun er í fullum gangi. Söngvari hljómsveitarinnar segir sig lengi hafa dreymt um að smala saman Íslendingum á Þingvöllum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,