Banvænn ofsaakstur, þjóðaratkvæði, gagnaver og strandveiði
Að minnsta kosti tveir eru látnir og um 20 slasaðir í Leipzig í Þýskalandi, þar sem ökumaður keyrði inn í mannfjölda síðdegis. Ökumaðurinn hefur verið handtekinn.
Landskjörstjórn hefur skilað umsögn um tvær nýjar tillögur að orðalagi spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.
Milljarða fjárfestingar í uppbyggingu gagnavera á Íslandi skipta sköpum fyrir þjóðarbúið. Hagvaxtaráhrif sökum þeirra geta orðið veruleg en þegar hafa útflutningstekjur þjóðarinnar aukist umtalsvert.
Rúmlega átta hundruð veiðileyfi hafa verið gefin út fyrir strandveiðitímabilið sem hófst í morgun.
Kjörbúðinni í Bolungarvík verður lokað um miðjan mánuðinn. Íbúar vilja sterka verslun í bænum því náttúruöflin geta hindrað för fólks inn á Ísafjörð.