Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Kvöldfréttir 2. maí 2026

Farið er að bera á uppsögnum hjá pípulagningarmönnum og nemar eiga í erfiðleikum með að komast á samning. Samdráttur á byggingamarkaði veldur áhyggjum.

Tveir þingmenn Repúblikana gagnrýna áform Bandaríkjastjórnar um að kalla um fimm þúsund hermenn heim frá Þýskalandi. Slíkt megi ekki ákveða einhliða.

Í samningi nýsköpunarfyrirtækisins Köru Connect við Evrópusambandið er tekið fyrir að notuð sé þjónusta frá Bandaríkjunum. Framkvæmdastjóri telur þetta til marks um breytta heimsmynd.

Fyrsta útförin í hartnær 70 ár var í Flatey á Skjálfanda um liðna helgi. Fyrrum íbúar bera sterkar taugar til heimahaganna.

Meira en helmingur þeirra sem höfðu skráð sig í utanvegahlaup í Vestmannaeyjum í dag valdi þann kost að fresta þátttöku vegna ótryggra samgangna. Brautarmet var sett í kvennaflokki.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,