Stöndum með mannréttindum segir utanríkisráðherra um málssókn á hendur Ísrael
Ísland leggur sitt af mörkum til að skýra hvað felst í hugtakinu þjóðarmorð með þátttöku í málssókn gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, að sögn utanríkisráðherra.
Fréttastjóra Sýnar koma fyrirhuguð kaup Símans á Sýn ekki á óvart en tímasetning tilkynningarinnar gerði það.
Stjórnvöld í Íran hóta að ráðast á bækistöðvar Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum verði þeim ekki lokað strax. Nýr erkiklerkur flutti sitt fyrsta ávarp ekki sjálfur.
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir úttekt Viðskiptaráðs á heilsugæslustöðvum byggja á gömlum gögnum, auk þess sem hún taki ekki mið af breytingum sem orðið hafa á starfseminni.
Tjörnesingar hafa ekki ákveðið hvernig tvö hundruð fjörutíu og átta milljónum sem hreppurinn fær úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verður ráðstafað. Hreppsnefndin vildi helst skila fénu.
Barnabækur eru yfir helmingur þeirra ríflega hundrað þúsund bóka sem hafa selst á árlegum bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda. Börn eru góðar fyrirmyndir í lestri, segir framkvæmdastjóri.