Hitafundur um bráðamóttöku Landspítalans, varnarmál, Bifröst og Sósíalistar
Félagar í fimm stéttarfélögum sem starfa á bráðamóttöku Landspítalans eru á fundi þar sem alvarleg staða á Bráðamóttökunni er rædd. Hjúkrunarfræðingur sem smitaðist af berklum segir að engar sýkingarvarnir séu á bráðamóttökunni.
Mark Rutte framkvæmdastjóri NATO segir aukin hernaðarumsvif Rússa og áhuga Kína á norðurslóðum kalla á aukin umsvif bandalagsins. Hann kynnti í dag nýtt átak um vöktun og viðveru á norðurslóðum.
Settur rektor Háskólans á Bifröst segir ótímabært að segja til um hver eftirköstin af deilum innan skólans verði. Hún leyfi sér að vera bjartsýn og vona það besta.
Sósíalistar í Reykjavík vilja að fjármagnstekjur skili sér sem útsvar til sveitarfélaganna og stofna Byggingarfélag borgarinnar. Of snemmt sé að segja til um hvort átök innan flokksins hafi áhrif á kosningarnar í vor.
Umsjón: Erla María Markúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson